Um klúbbinn
 
Aðilar NKF



A Proud Member of the World Association of Chefs Societies

 

Allt um Fagkeppnirnar á sýningunni Matur 2006
hér

www.123.is/motivmedia
Jón Svavarsson, Ljósmyndari


 


 

 



 

 

 


 

 


 

 

Síða 1 af 151  |   <<     >>


2.2.2008

Breytt vistun á heimasíðu Klúbbs matreiðslumeistara

Smellið hér til að færast yfir á nýja heimasíðu KM / We have a new web-page, please click here to watch:

Nú fyrir stuttu var opnuð ný og glæsileg heimasíða Freistingar sem flestir fagmenn kannast við.  Nýlega var gengið frá samningi milli Freistingar og Klúbbs matreiðslumeistara um að heimasíða klúbbsins yrði vistuð sem undirsíða á Freistingarsíðunni. 
Með þessu fyrirkomulagi er KM að fá aðgang að örugga vistun auk þess sem síðan verður fullkomnari að öllu leyti og býður upp á margfalt meiri möguleika á notkun.  Sem dæmi má nefna að nú getur klúbburinn sett inn logo styrktaraðilanna, mun öflugra myndasafn, enn mesti munurinn er þó ekki sjáanlegur og snýr að ýmsum tæknimálum, sem ekki verða tíunduð hér.

 

 

Meira

 

25.1.2008

Hjörtur Howser Hljómlista-dagskrárgerðarmaður og veitingarýnir

Hjörtur Howser Hljómlista-dagskrárgerðarmaður og veitingarýnir er gestur KM á febrúarfundi okkar.
Staðir sem hann hefur skrifað um eru t.d. ;  Siggi Hall á Óðinsvéum, Fiskmarkaðurinn, Rauðará, Einar Ben ofl.

http://veitingaryni.blogspot.com/

 

Meira

 

25.1.2008

Febrúarfundur Klúbbs matreiðslumeistara

Haldinn í Hellisheiðarvirkjun þriðjudaginn 5. febrúar

Fyrir fund er okkur boðið að skoða glæsilegan sýningarsal A. Karlssonar í glænýju húsnæði þeirra við Víkurhvarf 8 og þiggja léttar veitingar.  Þaðan verður svo farið með rútu í Hellisheiðarvirkjun  þar sem Orkuveita Reykjavíkur býður okkur í Prime ribs og flottheit að hætti hússins.  Amerískt þema í matnum að þessu sinni.  Alltaf flottur matur hjá Magnúsi Héðinssyni og félögum.
 
 Sérstakur gestur fundarins verður veitingahúsarýnirinn Hjörtur Howser sem farið hefur mikinn í gagnrýni sinni í tímaritum og á bloggsíðu sinni.  Nú ætlar hann að svara fyrir skrifin   og segja sína skoðun umbúðalaust.  Gætu orðið líflegar umræður.  
Auk hans verða nokkrir gestir sem sérstaklega verða kynntir á fundinum.

 

Meira

 

20.1.2008

Þakkarbréf til birgja

Ágætu félagar

Nú er hinn árlegi Hátíðarkvöldverður um garð genginn og tókst hann með ágætum.
Svona veislu getum við ekki innt af hendi með þeim formerkjum sem eru, nema til komi góðir stuðningsaðilar og sem betur fer eru þó nokkrir aðilar okkur hliðhollir og ber að þakka fyrir þann stuðning.
Einnig erum við úr nefndinni með þá ósk að sjáið þið færi á að versla við þessi fyrirtæki þá er það besta leiðin til að þakka þeim stuðninginn og getur aukið samstarf þessara aðila báðum til hagsbóta.

Grand Hótel, Icelandic Group, Dreifing, Bananar, Markaðsnefnd landbúnaðarins, Sláturfélag Suðurlands, Bako-Ísberg, Atlastaðafiskur, Veislan, Opal Seafood, Viðbót, Kjarnafæði, Vífilfell, Ölgerðin Egill Skallagrímsson, Glóbus,  Karl K. Karlsson, Humarhúsið, Hilton Nordica hotel, Radison SAS hótel Saga, Toyota, Garri, Orkuveitan, Sælkeradreifing, O.Johnson & Kaaber, Stóreldhús, Lækjarbrekka, A. Karlsson, Matarlist, GR veitingar, Rækja og Skel, Hrói Höttur, ISS, Magasin du Nord, Hagkaup.

Með kveðju
Nefnd um Hátíðarkvöldverð 2008.

 

Meira

 

19.1.2008

Figgjo diskar til sölu

Hágæða Figgjo diskar til sölu.

Um er að ræða 5 tegundir sem fást á sanngjörnu verði.

Um takmarkað magn er að ræða, þannig að fyrstur kemur fyrstur fær.

Áhugasamir vinsamlega sendið tölvupóst:

sverrirthorh@simnet.is

Sjá myndir:

 

 

Meira

 


                                         


 

Klúbbur Matreiðslumeistara